Á ég rétt á að skýrslan sé tekin upp?
Lögreglan á að taka skýrslutökuna upp þegar það er hægt.
Að jafnaði á að taka hana upp bæði með hljóði og mynd þegar málið snýst um:
- Manndráp og líkamsmeiðingar, nema minni háttar líkamsárásir samkvæmt 217. gr. hegningarlaga
- Kynferðisbrot
- Stórfelld fíkniefnabrot
Sama gildir að jafnaði þegar börn yngri en 15 ára eru yfirheyrð eða sérstakar aðstæður kalla á upptöku.
Ef lögreglan tekur skýrsluna ekki upp á hún að skrá hvers vegna.
Ef lögreglan tekur ekki upp skýrslutökuna heldur skrifar niður það sem þú segir, áttu að fá að lesa yfir framburðinn áður en þú skrifar undir.
Ef eitthvað er rangt eða vantar áttu rétt á að fá það leiðrétt eða athugasemdir þínar skráðar.
Lestu skýrsluna vel yfir. Það sem stendur í henni getur verið notað síðar í málinu, jafnvel þótt það sé ekki nákvæmlega það sem þú sagðir.
Upplýsingar veittar án ábyrgðar. Ath. að lög og reglur kunna einnig að hafa breyst.